Uppistaðan í hráefni Vísis er línuveiddur fiskur, en slíkt hráefni er það besta sem völ er á í gæðaframleiðslu á fiski.
Vísir framleiðir fjölbreyttar afurðir úr ýmsum fisktegundum. Þær tegundir sem mest er unnið úr eru þorskur, ýsa, keila og langa. Einnig hefur verið unnin steinbítur, blálanga og ufsi. Vísir státar af rúmlega 40 ára reynslu í verkun á fiski og þar hefur framleiðsla á saltfiski verið aðaláherslan. Saltfiskurinn er enn í aðalhlutverki þó að nú geti fyrirtækið státað af ýmsum frosnum, ferskum og þurrkuðum afurðum. Framleiðslumöguleikarnir í vinnslustöðvunum fjórum eru miklir og því getur fyrirtækið boðið upp á flestar vörutegundir úr mörgum fisktegundum.
Saltfiskurinn er aðallega hefðbundinn, flattur fiskur auk saltflaka. Þorskur er mest notaður í saltfiskinn en keila og langa eru einnig saltaðar. Aukaafurðir í saltfiskvinnslunni eru t.a.m. fés, lundir, sundmagar, gellur, þunnildi og klumbur. Einnig hefur Vísir framleitt töluvert af léttsöltuðum, lausfrystum flökum.
Frosnu vörurnar eru fjölbreytilegar. Hluti vinnslunnar er heilflök sem eru ýmist millilögð eða lausfryst. Einnig eru framleiddar mjög margar tegundir af bitum sem skornir eru á mismunandi hátt úr flökunum. Bitarnir eru lausfrystir. Sú tegund sem mest er fryst af er ýsa en einnig er um að ræða þorsk, keilu, löngu og steinbít.
Ferskar afurðir eru aðallega heilflök og bitar. Einnig hefur verið seldur hausaður fiskur og heill. Þessar afurðir fara ýmist með skipi eða flugi til kaupenda. Sem fyrr eru það þorskur og ýsa sem mest fer af í ferska framleiðslu, auk þess sem steinbítur hefur einnig verið unninn.
Þurrkaðar afurðir eru aðallega hausar en auk þeirra eru ýmiss konar bein/hryggir og skreið. Hausarnir eru úr flestum tegundum en þó mest af þorski og ýsu. Skreiðin er aðallega keila.




