Ferskfiskvinnslan hefur aðallega verið á Húsavík og Djúpavogi en einnig lítilega á Þingeyri.
Ferskir bitar:
Á Húsavík hafa verið framleiddir bitar og þeir sendir með flugi og skipi á markaði í Evrópu og Ameríku.
Fersk flök:
Á Djúpavogi hafa verið framleidd heilflök fyrir ferskfiskmarkaði í Evrópu og Ameríku. Flökin eru ýmist með roði eða roðlaus, með beini eða beinlaus og af ýmissi stærð og þyngd.
Hausaður fiskur:
Nokkuð hefur verið sent út af hausuðum fiski. Þá er eingöngu um að ræða þorsk.