Vinnslurnar á Djúpavogi, Húsavík og Þingeyri eru þau hús sem hafa möguleika á að frysta. Um er að ræða flestar þær frystiaðferðir sem um ræðir í landvinnslu. Á Húsavík er aðallega lausfryst en einnig er þar alltaf eitthvað blokkfryst. Á Djúpavogi og Þingeyri er hægt að millileggja, lausfrysta og blokkfrysta. Mest er fryst af ýsu í húsunum en alltaf eitthvað af þorski og öðrum tegundum.
Millilagt:
Á Djúpavogi og Þingeyri er góð aðstaða til að framleiða og frysta millilögð flök. Í steinbít, keilu og ýsu hefur verið framleitt í 6 kg. pakkningar en einnig töluvert af ýsu í 20 punda (lbs) pakkningar fyrir Ameríku. Í raun er hægt að millileggja allar tegundir í margar tegundir af pakkningum.
Lausfryst:
Á Húsavík er öll framleiðslan á bitum lausfryst. Einnig eru þar lausfryst formflök. Á Djúpavogi og Þingeyri er góð aðstaða til að framleiða og lausfrysta flök. Mikið hefur verið lausfryst af ýsuflökum fyrir Bretland og Ameríku. Það sem mest hefur verið lausfryst er léttsöltuð þorskflök. Einnig hafa verið fryst léttsöltuð ýsu-, ufsa- og keiluflök. Frystigeta á Djúpavogi er um 400 kg./ klst. en á Þingeyri um 1.500 kg/klst.
Blokkfryst:
Blokkarfrysting er til staðar á Húsavík, Djúpavogi og Þingeyri. Aðallega er um að ræða bitablokk úr þorski og ýsu en einnig er marningur úr þorski og ýsu blokkfrystur.