VISIR HF SELECT A LANGUAGE

Member Login

Saltaðar afurðir

Flattur fiskur
Vinnslan í Grindavík er sérhæfð í framleiðslu á flöttum fiski en einnig hefur hann verið framleiddur á Djúpavogi. Hráefnið er eingöngu línuveiddur þorskur og því fer framleiðslan í bestu gæðaflokka. Stærstu markaðir fyrir þennan fisk eru  Spánn, Ítalía, Grikkland. Einnig hefur flattur fiskur verið seldur til Portúgal. Þessi markaðslönd gefa fiskinum nafnið SPIG. Við pökkun er flatti fiskurinn metinn í þrjá gæðaflokka: SPIG I, II og III. Við stærðarflokkun er notast við hefðbundna flokkun, þ.e.: 4000 gr. og upp úr, 2700-4000 gr., 1700-2700 gr., 1200-1700 gr., 800-1200 gr., 500-800 gr., og loks 400-500 gr. Megninu af fiskinum er pakkað í 25 kg. kassa.

Flök
eru framleidd bæði á Djúpavogi og á Þingeyri. Það er eins og með flatta fiskinn að þar er hráefnið eingöngu línuveiddur fiskur. Flökin fara inn á sömu markaði og flatti fiskurinn, það er Ítalíu, Grikkland og Spán. Flökunum er pakkað í þrjá gæðaflokka: A, B og C. Stærðarflokkarnir eru: 1400 gr. og upp úr, 1000-1400 gr., 700-1000 gr., 400-700 gr., 200-400 gr. og 100-200 gr. Megninu af flökunum er pakkað í 25 kg. kassa.

Tusk Fillets




VÍSIR HF Hafnargötu 16 240 Grindavík Sími 420 5700 Bréfasimi 426 8176 visir@visirhf.is www.visirhf.is