VISIR HF SELECT A LANGUAGE

Member Login

Stofnandinn

FRUMKVÖĐULL

Ađalstofnandi Vísis hf, Páll H. Pálsson, fćddist í Reykjavík áriđ 1932. Hann fluttist nokkurra vikna gamall til Ţingeyrar, ţar sem hann ólst upp međ foreldrum sínum og ţremur systkinum. Foreldrar hans voru ţau Páll Jónsson og Jóhanna Dađey Gísladóttir. Fjölskyldan bjó í hjarta ţorpsins ađ Ađalstrćti 4. Fađirinn, Páll, átti bátana Fjölni og Hilmi og fórst međ Hilmi í Faxaflóa áriđ 1943. Jóhanna Dađey gerđi Fjölni áfram út til síldveiđa og fiskflutninga í stríđinu allt ţar til hann sökk, er hann lenti í árekstri viđ enskt póstskip í lok stríđsins, í mars 1945.

Páll H. Pálsson var ellefu ára gamall ţegar hann fór fyrst á sjóinn sem léttadrengur á Fjölni. Ţar á eftir stundađi hann sjómennsku á ýmsum bátum og togurum ţar til hann fór í Stýrimannaskólann. Ţađan útskrifađist hann 1953. Ţađ ár keypti hann ásamt fleirum 100 tonna bát, Ágúst Ţórarinsson frá Stykkishólmi. Fékk hann nafniđ Fjölnir ÍS 177 og var gerđur út á línuveiđar frá Ţingeyri.

Á skólaárunum fyrir sunnan kynnist hann Margréti Sighvatsdóttur. Ţau giftu sig á sjómannadaginn áriđ 1955 og hófu búskap í Keflavík. Fagna ţau hjónin ţví 50 ára brúđkaupsafmćli sínu sama ár og fyrirtćki ţeirra heldur upp á 40 ára starfsafmćli sitt. Börn Páls og Margrétar urđu sex. Ţau eru Margrét, Páll Jóhann, Pétur Hafsteinn, Kristín Elísabet, Svanhvít  Dađey og Sólný Ingibjörg.                         

Eftir Stýrimannaskólann gerđist Páll stýrimađur á m/b Voninni frá Keflavík og síđar á m/b Hilmi. Ţví nćst varđ hann skipstjóri á m/b Nonna og ţar á eftir á m/b Bárunni. Áriđ 1963 keypti Páll m/b Farsćl og var međ hann á línu- og humarveiđum. Áriđ 1964 keypti hann, ásamt Kristmundi Finnbogasyni og Ásgeiri Lúđvíkssyni, vélbátinn Vísi KE 70 og fiskverkunarhúsiđ Sćvík í Grindavík og flutti ţangađ međ fjölskyldu sína í nóvember áriđ 1965. Félagiđ Vísir sf. var svo formlega stofnađ 1. desember 1965.

Páll var forstjóri félagsins allt til ársins 2000 og enn ţann dag í dag er hann formađur stjórnar Vísis. Hann var sćmdur heiđursmerki hinnar íslensku fálkaorđu áriđ 2001, fyrir störf sín ađ sjávarútvegi og fiskvinnslu.




VÍSIR HF Hafnargötu 16 240 Grindavík Sími 420 5700 Bréfasimi 426 8176 visir@visirhf.is www.visirhf.is