VISIR HF SELECT A LANGUAGE

Member Login

Vísir í fjörutíu ár

 
Formáli Péturs H. Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis, í afmælisbæklingi sem gefinn var út á fjörutíu ára afmæli fyrirtækisins

Í samantekt á helstu atburðum í atvinnusögu staðanna fjögurra, sem Vísir er með starfsemi á /.../, sést hversu líkar áherslur fólks voru á fyrri hluta síðustu aldar. Fiskimiðin, okkar helsta forðabúr og gullkista, voru að opnast og Íslendingar voru að rísa úr örbirgð til bjargálna.

Frumkvöðlar þess tíma nýttu sér þau tækifæri sem gáfust og unnu sér ekki hvíldar fyrr en skútan var í höfn. Hver á sínu landshorni kepptu menn að sama marki. Á árunum 1942-1947 keypti Kaupfélag Dýrfirðinga frystihúsið á staðnum. Árið 1945 var ákveðið að byggja frystihús á Húsavík og sama ár var Búlandstindur á Djúpavogi stofnaður og bygging  frystihúss hófst. Þetta ár var Palli í Sævík, þá kallaður Bói, orðinn þrettán ára og þegar farinn að stunda sjóinn.

Sextíu árum síðar, á fertugsafmæli Vísis, eru öll þessi félög komin undir einn hatt og Ísland er orðin ein verstöð. Framtíðin er björt og möguleikar okkar miklir þar sem kvótastaðan er sterk, skipin góð og húsin bjóða upp á öfluga og fjölbreytta framleiðslu á gæðavörum. Markaðsstarf stendur á tímamótum og aldrei hefur meira verið lagt í vöruþróun og rannsóknir.

Við getum náð forystu á okkar sviði með skýrum áherslum og sterkri framtíðarsýn. Til að það takist þarf rekstrarumhverfi fyrirtækisins að vera stöðugt og gott starfsfólk verður eftir sem áður mikilvægasti þáttur starfseminnar.

Við skulum því njóta þessara tímamóta og gleðjast saman. Sýnum að við erum ekki bara fyrirtæki með fortíð heldur líka með bjarta framtíð.

Fyrir hönd stjórnar Vísis hf.
Pétur Hafsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri




VÍSIR HF Hafnargötu 16 240 Grindavík Sími 420 5700 Bréfasimi 426 8176 visir@visirhf.is www.visirhf.is