Á Djúpavogi eru framleidd saltfiskflök og hefðbundinn SPIG-fiskur. Keila hefur verið unnin á Djúpavogi, þá sem saltflök. Haustið 2005 var byrjað að slátra þar laxi á fyrir Salar Islandica. Slátrað er á bilinu 10-15 tonnum á dag, 2-5 daga vikunnar. Af bolfiski eru unnin um 4.000 tonn á ári. Fjöldi starfsmanna er um 50.