Nemendur HR vinna verkefni með Vísi, Marel og Odda

 

FRÉTTATILKYNNING

 Nemendur HR vinna verkefni með Vísi, Marel og Odda

 

 Reykjavík 19. janúar 2017 - Hnakkaþon Háskólans í Reykjavík (HR) og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hófst í dag og er nú haldið í þriðja sinn. Í Hnakkaþoni reyna nemendur HR með sér í lausn verkefna sem tengjast íslenskum sjávarútvegi. Að þessu sinni munu nemendur vinna að verkefni með Vísi í Grindavík, Marel og prentsmiðjunni Odda. Úrslitin verða kynnt á laugardaginn kl. 16:00. Það er til mikils að vinna því Icelandair Group og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi bjóða sigurliðinu á sjávarútvegssýninguna Seafood Expo North America, í Boston í mars.

 

Keppnin hefst í dag, fimmtudaginn 19. janúar kl. 13:00. Þá fá liðin ítarlegar upplýsingar um verkefnið og hitta sérfræðinga úr sjávarútvegsfyrirtækjum til skrafs og ráðagerða. Laugardaginn 21. janúar kl. 14-15:00 kynna liðin niðurstöður sínar og tillögur að lausnum fyrir dómnefnd. Verðlaunaafhending fyrir bestu lausnina fer fram á laugardaginn kl. 16:00.

Einvalalið sérfræðinga skipar dómnefnd Hnakkaþonsins 2017:

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands
Bjarni Guðjónsson, sölustjóri sjávarútvegs hjá Odda
Erla Ósk Pétursdóttir, gæða- og þróunarstjóri Vísis
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo
Hallur Þór Sigurðarson, aðjúnkt við viðskiptadeild HR
Hrefna Sigríður Briem, forstöðumaður B.Sc. náms við viðskipta- og hagfræðideild HR 
Karen Kjartansdóttir, samskiptastjóri SFS
Pálmi Jónsson, framkvæmdastjóri Blámar

Íslenskur sjávarútvegur er margþætt atvinnugrein sem kallar á mikla þekkingu og sérhæft starfsfólk. Meðal viðfangsefna hans eru fiskveiðar, matvælavinnsla, markaðssetning, nýsköpun og tækniþróun, flutningar, rannsóknir, umhverfismál og margt fleira. Markmið með Hnakkaþoninu er að kynna þau ótalmörgu tækifæri til nýsköpunar og fjölbreyttu störf sem íslenskur sjávarútvegur býður upp á og kalla fram nýjar og frískar hugmyndir frá nemendum HR. Þá er eitt af meginmarkmiðum Hnakkaþonsins að minna nemendur á að arðbærni og góð umgengni um náttúruna verða að fara saman ef atvinnustarfsemi á að vera sjálfbær.

Hnakkaþonið er einnig liður í áherslu Háskólans í Reykjavík á raunhæf verkefni í námi, í samvinnu við íslenskt atvinnulíf.

 

Frekari upplýsingar um dagskrá eru á: http://www.ru.is/haskolinn/vidburdir/hnakkathon-2017

 

Nánari upplýsingar veitir:

Eiríkur Sigurðsson, forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs hjá HR  í síma 859 5117, netfang eirikursig@hr.is