Jóhanna Gísladóttir hét áður Seley ÞH 381 og var keypt í ársbyrjun 2005 af Íshafi á Húsavík sem ári áður eignaðist það við stofnun þess og innkomu Eskfirðinga í félagið. Á Eskifirði hét skipið Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 en var upphaflega byggt fyrir Patreksfirðinga á Akranesi 1969 og hét þá Helga Guðmundsdóttir BA 77. Jóhanna Gísladóttir var endurbyggð fyrir línuveiðar sumarið 2005 og er nú stærsta línuveiðiskip Íslands.
Er 250 tonna fjölveiðiskip byggt 1965 í Þýskalandi og hét þá Þorsteinn RE 303. Skipið var keypt frá Hornafirði 2003 og hét þá Garðey SF 22. Lengst af var skipið gert út á net og nót en er nú gert út á línu með beitningavél.
Er 350 rúmlesta stálskip sem smíðað var í Hollandi 1967 og hét þá Örfirisey RE. Skipið var keypt árið 1999 frá Dalvík, af B. G. Ben. og hét þá Arnþór EA 116. Skipið var aðallega gert út á hringnót og togveiðar þar til því var breytt í línu- og netaskip eftir kaupin
Fjölnir er 200 rúmlesta stálskip, smíðað í Noregi 1964. Fjölnir hét áður Hrungnir GK 50 en nafni hans var breytt árið 2008. Árið 1979 keypti Vísir 2/3 hluta í Hrungni á móti Ólafi R. Sigurðssyni sem síðan seldi sinn hlut árið 1985. Hrungnir hét upphaflega Bjarmi II. og var gerður út frá Dalvík. Hann er nú gerður út til línuveiða með beitningavél.
Er 230 rúmlesta stálskip sem keypt var í febrúar 1982 af Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Sighvatur hét upphaflega Bjartur og var gerður út frá Neskaupstað. Hann var smíðaður í A-Þýskalandi 1965. Sighvatur er útbúinn til línuveiða með beitningavél.