VISIR HF SELECT A LANGUAGE

Member Login

40 ára útgerðasaga Vísis

Fjölnir ÍS 177 var fyrsti bátur Páls H. Pálssonar, keyptur í félagi með öðrum á Þingeyri árið 1953. Þá hét hann Ágúst Þórarinsson SH 25. Þetta var 100 tonna eikarbátur, smíðaður í Svíþjóð. Fjölnir ÍS 177 var gerður út á línuveiðar frá Þingeyri.

 

Vísir KE 70 (902) var fyrsti báturinn sem Vísir sf. í Grindavík keypti, árið 1965, af Sævík hf. Vísir var 53 rúmlesta eikarbátur, smíðaður á Ísafirði 1946 fyrir Keflvíkinga. Hann var seldur Skipanausti hf. í Grindavík árið 1970.


 

Farsæll KE 27 var fyrsti báturinn sem Páll keypti einn síns liðs, 21. ágúst 1963, af Hraðfrystihúsi Gerðabátanna hf. Farsæll var 53 brúttólesta eikarbátur, smíðaður í Danmörku árið 1930. Páll var skipstjóri á honum þar til hann sökk í línuróðri 1965 við Garðskaga.



 


Reykjaröst GK 17 (981) var keypt árið 1971. Reykjaröst var 104 rúmlesta eikarbátur, smíðaður í Danmörku 1965.  Hún hét upphaflega Sigurfari og var gerð út frá Akranesi.  Reykjaröst var seld árið 1976. til Stykkishólms.


 

Fjölnir GK 17 (203) kom í skiptum fyrir Reykjaröst.  Faðir Páls átti einmitt línuveiðarann Fjölni frá Þingeyri, en hann sökk eftir árekstur þegar skipið var í fiskflutningum til Bretlands.  Fjölnir GK 17 hét upphaflega Gísli Jónsson og var gerður út frá Grindavík.  Hann var 152 rúmlesta stálskip, byggt í V-Þýskalandi 1960.  Fjölnir var seldur árið 1986 til Dögunar hf. á Sauðárkróki.

 

Már GK 55 (23) var stálskip, 101 tonn að stærð, smíðað árið 1961 í A-Þýskalandi.  Már var keyptur á uppboði árið 1989.  Hann reri lengst af frá Grindavík og var á netum, línu og humarveiðum.  Már hét upphaflega Baldur og var gerður út frá Dalvík.  Hann var úreltur árið 1990.

 

 


Hrungnir GK 50 (237) er 200 rúmlesta stálskip, smíðað í Noregi 1964.  Árið 1979 keypti Vísir 2/3 hluta í Hrungni á móti Ólafi R. Sigurðssyni sem síðan seldi sinn hlut árið 1985.  Hrungnir hét upphaflega Bjarmi II. og var gerður út frá Dalvík.  Hann er nú gerður út til línuveiða með beitningavél.

 

Fjölnir GK 157 (1759) var keyptur til fyrirtækisins árið 1991, frá Garðey hf. á Hornafirði.  Fjölnir er 117 rúmlesta stálskip og var smíðaður í Danmörku 1982.  Garðey hf. á Hornafirði keypti hann til landsins 1987 og hét hann þá Garðey SF 22.  Árið 1994 var Fjölnir seldur til Svíþjóðar.



 


Sighvatur GK 57 (975) er 230 rúmlesta stálskip sem keypt var í febrúar 1982 af Þróunarsamvinnustofnun Íslands.  Sighvatur hét upphaflega Bjartur og var gerður út frá Neskaupstað.  Hann var smíðaður í A-Þýskalandi 1965.  Sighvatur er útbúinn til línuveiða með beitningavél.


 

Máni BA 166 (671) var keyptur árið 1990.  Máni er 75 rúmlestir að stærð, smíðaður árið 1959 í Danmörku.  Hann var seldur til Þorlákshafnar 1996.



 

Sæborg GK 457 (254) var keypt til fyrirtækisins árið 1992. frá Sjófangi hf. í Reykjavík. Sæborg var smíðuð í Englandi 1964. Hún var 267 rúmlesta stálskip sem var gert út á net, nót og troll.  Fyrsti eigandi Sæborgar var Jörundur hf. í Reykjavík og hét skipið upphaflega Jörundur III.  Skipið sökk sumarið 1996 þegar það var á síldveiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum.  Mannbjörg varð en Sæborgin var á landleið með fullfermi.



Sævík GK 257 (971) er 230 rúmlesta stálskip sem smíðað var í Þýskalandi 1965 og er systurskip Sighvatar GK.  Það hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102.  Skipið var keypt í árslok 1997 af Útgerðarfélagi Akureyringa og hét þá Aðalvík KE 95.  Skipið er eins og hin fyrrnefndu útbúið sem fjölveiðiskip en er nú gert út til línuveiða.  Skipið var selt til Ísafjarðar 2004.



Freyr ÞH 1 (11) er 198 rúmlesta stálskip sem keypt var í október 1995 frá Skipum hf. í Þorlákshöfn.  Hann var smíðaður í Noregi 1963 fyrir Arnarvík hf. í Grindavík og hét þá Arnfirðingur RE 212.  Freyr er gerður út á línu og dragnót.  Freyr var seldur til Kambs á Flateyri árið 2005.


 

Páll Jónsson GK 257 (168) er 249 rúmlesta stálskið sem smíðað var í Þýskalandi 1959.  Upphaflega hét skipið Pétur Thorsteinsson BA 12 og var í eigu Suðurfjarðarhrepps.  Páll Jónsson var keyptur í mars 1996 frá Þorlákshöfn og hét þá Páll ÁR 401.  Hann var aðallega á togveiðum.  Skipið var selt 1996 til Básafells á Ísafirði.

 

Sunnutindur SU 59 (979) er 500 rúmlesta stálskip, smíðað í Noregi 1964 og hét upphaflega Reykjaborg RE 25.  Skipið var keypt 1999 frá Vopnafirði og hét þá Víkurberg GK 1.  Sunnutindur er fjölveiðiskip sem hefur aðallega verið gert út á hringnót og togveiðar síðustu ár.  Skipið var selt til Danmerkur til niðurrifs 2004.

 

Páll Jónsson GK 7 (1030)  (var Goðatindur SU 57 fyrsta árið hjá félaginu) er 350 rúmlesta stálskip sem smíðað var í Hollandi 1967 og hét þá Örfirsey RE.  Skipið var keypt árið 1999 frá Dalvík, af B.G. Ben. og hét þá Arnþór EA 116.  Skipið var aðallega gert út á hringnót og togveiðar þar til því var breytt í línu og netaskip eftir kaupin.

 

Kristín GK 157 (972) er 250 tonna fjölveiðiskip byggt 1965 í Þýskalandi og hét þá Þorsteinn RE 303.  Skipið var keypt frá Hornafirði 2003 og hét þá Garðey SF 22.  Lengst af var skipið gert út á net og nót en er nú gert út á línu með beitningavél.

 

Gerður ÞH 110 (1035) er 150 lesta fjölveiðiskip sem smíðað var 1968 í Noregi og keypt þaðan notað. Það var gert út frá Suðureyri við Súgandafjörð og hét þá Kristján Guðmundsson ÍS 77.  Skipið var keypt árið 2002 frá Hornafirði og hét þá Melavík SF 34 og var gert út á línu.  Skipið var selt 2004 til aðila í Reykjavík sem ætluðu að selja það áfram til Rússlands.


 

Gissur hvíti GK 457 (1626) er 400 tonna stálskip sem keypt var frá Hornafirði 2003.  Það var smíðað árið 1976 í Danmörku og hét Hafrenningur GK 38 þegar það var keypt þaðan fyrst til Grindavíkur frá Danmörku.  Það var lengst af gert út á rækju og hét þá Hersir.  Síðan var það útbúið til línuveiða og frysti aflann um borð.  Skipið var selt til Kanada 2005 þar sem það stundar netaveiðar á grálúðu.




Jóhanna Gísladóttir ÍS 7 (1076) er 450 tonna nótaskip sem breytt var í línuskip með nýrri gerð af beitningavél.  Það hét áður Seley ÞH 381 og var keypt í ársbyrjun 2005 af Íshafi á Húsavík sem ári áður eignaðist það við stofnun þess og innkomu Eskfirðinga í félagið.  Á Eskifirði hét skipið Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 en var upphaflega byggt fyrir Patreksfirðinga á Akranesi 1969 og hét þá Helga Guðmundsdóttir BA 77.  Jóhanna Gísladóttir er stærsta línuveiðiskip íslenska flotans.




VÍSIR HF Hafnargötu 16 240 Grindavík Sími 420 5700 Bréfasimi 426 8176 visir@visirhf.is www.visirhf.is