Fyrir fjóra
4 hnakkastykki af vel útvötnuðum saltfiski
Saltfiskstykkjunum velt upp úr hveiti og paprikudufti
og steikt á pönnu í olíu við háan hita á báðum hliðum.
Sett í 180 gráðu heitan ofn og bakað í u.þ.b. 10 mín.
Kúskús (Cous-cous)
2 bollar kúskús
1 msk tómatkraftur
2 hvítlauksgeirar
1 tsk. kjúklingakraftur
3 bollar vatn eða hvítvín
Aðferð:
Suðunni hleypt upp á vökvanum og svo allt sett út í og soðið þar til það er orðið mjúkt.
Hvítvínssósa
1 bolli hvítvín
1 skarlottlaukur (shalot-laukur), fínsaxaður
1 tsk hlynsýróp (maple sirup)
1/2 bolli fiskisoð (kraftur)
2 bollar rjómi
1/2 bolli ristaðar kasúhnetur (cashew-hnetur)
Salt og pipar
Smjörklípa
Aðferð:
Skarlottlaukurinn og hvítlaukurinn steiktur í potti við lágan hita
Hvítvíni bætt út í og soðið niður
Rjóma bætt út í og soðið niður
Hlynsýróp, fiskikraftur og ristaðar kasúhnetur sett útí sósuna
Smakkað til með salti og pipar
Gott er að léttsteikja ferskt spínat á pönnu og hafa með réttinum, kryddað með salti, pipar og svolitlu hlynsýrópi.
Höfundur réttar:
Hjálmar Örn Erlingsson,
matreiðslumaður og eigandi á Veitingastaðnum Salthúsinu í Grindavík.