Þann 14.maí kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og forsetafrúin Dorrit Moussaieff í heimsókn í Vísi Grindavík og ræddu við starfsmenn um forsetaembættið og framtíð þjóðarinnar. Forsetahjónunum var vel tekið og þeim boðið í kaffi og kökur, en forsetinn hélt upp á 69 ára afmælið sitt og brúðkaupsafmæli þeirra hjóna. Eins og sjá má á myndunum hér að neðan skemmtu starfsfólk og forsetahjónin sér vel. Vísir óskar þeim til hamingju með daginn og þakkar heimsóknina.