Haustak sem Vísir á helmingshlutdeild í, endurnýtir yfir 3000 tonn af fiskisalti sem nýtt er í hálkuvarnir og efni til rykbindingar. Þróun á endurvinnslunni hefur staðið yfir í tvö ár og smíðaðar hafa verið vélar sem hreinsa alla fiskbita úr saltinu. Í desember síðastliðinn fékk verkefnið styrk úr vaxtarsjóði Suðurnesja.