Vísir er með þarfir neytandans í huga við allt sitt ferli, bæði við veiðar og vinnslu. Vísir hefur kappkostað og lagt mikið upp úr því að búa til stöðuga vinnslu sem tryggir áreiðanleika í afhendingu á vörum. Stöðugleikinn helgast af því að menn geta skipulagt veiðarnar fram í tímann vegna núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis og línuskipin þurfa sjaldan að hætta veiðum vegna veðurs. Vinnslurnar fjórar tryggja mikinn sveigjanleika í vinnsluaðferðum og afurðaflokkum. Það ásamt jöfnum og skipulögðum veiðum er það sem styrkir fyrirtækið í að standa við gerða samninga í fjölbreyttri vinnslu.