Ísland er með svokallað kvótakerfi í gangi til þess að stýra veiðum á hafsvæðum innan landhelgi Íslands og utan. Kvótakerfið er þannig úr garði gert að það tekur mið af ástandi sjávar á hverjum tíma. Með miklum rannsóknum ár hvert á hafsvæðinu í kringum Ísland er árlega gefinn út svokallaður kvóti. Kvótinn er skilgreindur á hverja tegund fyrir sig og eru fáar fisktegundir utan kvóta. Kvótinn getur hækkað og lækkað ár hvert eftir ástandinu en hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvenær hann veiðir sinn kvóta, svo lengi sem það er gert innan kvótaárs, sem er skilgreint frá 1. september til 31. ágúst ár hvert. Með þessum hætti er tryggt að veiðarnar séu sem hagkvæmastar og hægt er að halda úti jafnri vinnslu allt árið um kring.