Bréf til starfsmanna - núverandi óvissuástand getur staðið fram á sumar 2024

Bréf til starfsmanna Vísis 6.feb 2024
Bréf til starfsmanna Vísis 6.feb 2024

Í dag fengu 130 af starfsfólki Vísis meðfylgjandi bréf þar sem þeim er tilkynnt að þau falli af launaskrá og fari á úrræði ríksins vegna náttúruhamfaranna í Grindavík. Ekki er um rof á ráðningasambandi að ræða. Eftir eru 60 manns í landi sem vinna við þau verkefni sem í gangi eru, m.a. saltfiskvinnsluna í Helguvík.

Almannavarnir hafa gefið út að núverandi óvissuástand geti staðið fram á sumar 2024. Verklagsreglur Almannavarna hamla því að starfsemi sé haldið úti í bænum að öllu leyti eða hluta. Tekist hefur að hefja starfsemi með saltfisk á tveimur nýjum stöðum en starfsmenn þar eru færri en annars væri og verkefnin hafa breyst. Nánari útfærsla hvað það varðar verður kynnt í vikunni.