Umferðaröryggi í kringum Hafnargötu 18, vinnsluhús Vísis hf.

Umferð mun aukast í kringum Hafnargötu 18
Umferð mun aukast í kringum Hafnargötu 18
Umferð vöruflutningabíla og lyftara mun aukast töluvert í kringum Hafnargötu 18, vinnsluhús Vísis næstu vikur. Vísir hefur tekið að sér nýtt verkefni við pökkun á eldislaxi og vegna þess mun aukinn umferðarþungi liggja um vinnsluhúsið. Áætlað er að verkefnið taki fjórar til sex vikur.
Vinnsluhúsið er staðsett á Hafnargötu 18, á milli Ránargötu og Seljabótar austan við saltfiskvinnslu Vísis. Við biðjum því vegfarendur að sýna aðgát og tillitsemi á svæðinu.