Eigendur Vísis hf og Þorbjarnar hf halda samstarfi áfram

Codland er eitt af sameiginlegum félögum Vísis og Þorbjarnar þar sem áhersl­an hefur verið á að full…
Codland er eitt af sameiginlegum félögum Vísis og Þorbjarnar þar sem áhersl­an hefur verið á að full­nýta þorskinn og leita leiða til að fram­leiða hágæðavöru úr hliðar­af­urðum sem verða til við veiðar og vinnslu.
Viðræður um mögulega sameiningu sem hófust sl. haust hefur formlega verið hætt hjá eigendum Vísis hf og Þorbjarnar hf. en ákveðið hefur verið að halda áfram góðu samstarfi fyrirtækjanna tveggja.
 
Fjölmargir vinnuhópar voru skipaðir til að skoða alla snertifleti og hafa þeir nú skilað inn tillögum sínum. Eftir yfirferð þeirra er niðurstaðan sú að fara ekki með sameiningarmál lengra að sinni, en halda þess í stað góðu samstarfi Þorbjarnar hf. og Vísis hf. áfram og nýta niðurstöðu vinnuhópanna til að styrkja það samstarf enn frekar. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu nú, telja eigendur fyrirtækjanna tveggja að hún útiloki ekki aðra möguleika í framtíðinni.
 
Vísir og Þorbjörn eru rótgróin og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, svipuð að stærð og hafa í gegnum árin unnið talsvert saman. Eiga þau meðal annars félög saman á borð við Haustak, Codland og sölufyrirtæki á Grikklandi.
 
Vel yfir 600 manns vinna hjá fyrirtækjunum tveimur sem samanlagt hafa um 44.000 tonn af aflaheimildum og er ljóst að gott samstarf mun gagnast fyrirtækjunum vel og auka sóknartækifæri þeirra á erlendri grundu.